Shipping policy

Afgreiðslutími pantana er allt að 3 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað, nema um forpöntun sé að ræða.

Allar pantanir eru sendar upp að dyrum eða á næsta pósthús með Íslandspósti. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. Hægt er að sækja pantanir eftir samkomulagi á Háabarð 12, 220 Hafnarfirði.

Pöntun er einungis afgreidd þegar hún telst greidd. Snjallhornið ber ábyrgð á vöru þar til hún er afhent kaupanda eða flytjanda.

Vara telst afhent þegar viðskiptavinur hefur veitt henni viðtöku og tekur viðskiptavinur þá við áhættu af söluhlut. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda helst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.

Um pantanir sem eru sendar með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Snjallhornið ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Snjallhorninu til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.